Halldór og Valgerður

10.02.2008 13:55:16 / valgerður

Ný heimasíða

Jæja gott fólk, nú höfum við sett upp nýja heimasíðu, ekki bloggsíðu þannig að það er ekki hægt að commenta eða kvitta fyrir innlitið. Þessi bloggsíða (blogcentral) verður ennþá í notkun svona af og til þannig að ef þið viljið koma einhverju á framfæri til okkar þá getið þið ennþá kvittað fyrir hér í gestabókina okkar. Við munum líka reyna muna eftir því að kíkja hér inn reglulega. Veit ekki hvort það verður mikið um blogg á þessari síðu þar sem við munum líklega skrifa meira inn á heimasíðuna. Þessi nýja síða er miklu notendavænni en þessi enda gerð í Makkanum, hehehe :) Fyrir ykkur sem viljið fylgjast með þá geti þið sent okkur tölvupóst á valdor2217@mac.com og beðið okkur fallega um slóðina og þá skulum við hugsa hvort þið fáið hana. Þetta er nokkuð flott síða þó að ég segi sjálf frá. Síðan er læst og munum við láta aðgangsorð fylgja með til þeirra sem biðja okkur fallega :) Kveðja, Valgerður og Halldór

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 00:44:23 / valgerður

Jæja þá

Núna eru loksins komnar nokkrar myndir inn frá Hawaii ferðinni okkar. Ég er samt bara búin að setja inn myndir frá San Francisco. Það tekur dálítinn tíma að útbúa myndirnar þannig að ég geti sett þær auðveldlega inn þannig að ég verð að gera þetta í hollum. Ég tek Hawaii næst (veit ekki alveg hvenær) en þið verðið bara að vera þolinmóð. Þetta kemur allt með kalda vatninu. Svo kannski skelli ég inn eins og nokkrum jólamyndum, koma kannski í febrúar eða mars með þessu áframhaldi en betra er seint en aldrei er það ekki? Annars er svo langt síðan að við blogguðum en það er allt bara við það sama. Jólin afstaðin og vonum við að allir hafi haft það eins gott og við höfðum. Við fengum marga flotta jólapakka og mér leið eins og ég væri smábarn því við (ég og Halldór) fengum flest alla pakkana. Reyndar voru líka afmælispakkar til okkar frá Sigrúnu og Ragnari. Bara ennþá skemmtilegra, fleiri pakkar til að opna, hehe:) Núna eru það áramótin og þá verður nú mikið gaman og mikið fjör. Það verður mikið sprengt og búumst við við mikilli ljósasýningu. Ein jólagjöfin sem Halldór fékk var Rubik's kubbur og hann ruglaði honum loksins í kvöld og við náðum að leysa hann. Að vísu með smá hjálp og tók smá stund en það tókst að lokum. Maður skilur ekki hvernig þetta virkar allt saman. Allt eintóm stærðfræði og einhverjir algóriþmar (eitthvað sem við skiljum hvorugt, stærðfræði!!!). En þetta var mjög góð og skemmtileg stund að ná að leysa Rubik's kubbinn:) Við viljum að lokum óska öllum gleðilegs nýs árs og þökkum við kærlega fyrir frábærar stundir á liðnu ári. Vonum að nýja árið verði jafn gott, ef ekki betra, en það gamla. Thank the kokk and spreng your heart out! Valgerður og Halldór

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 17:26:26 / valgerður

Alltaf gott að koma heim

Þá erum við komin heim úr hálfri heimsreisu, fórum nefnilega hálfa leiðina og til baka. Ferðalagið mikla byrjaði í KEF, flugum til MSP (Minneapolis) og þaðan til SFO (San Fransisco. Samtals tók þetta ferðalag um 14 klst. og þar af 10 klst á flugi. Gistum hjá Ingu og Lior í Berkeley. Eyddum 3 dögum í SFO sem er alveg frábær borg. Hjóluðum yfir Golden Gate, fórum út í Alcatraz, ferðuðumst um í Cable Car, löbbuðum um Fishermans Warf, sáum hæstu tré í heimi í Muir Woods og margt fleira. Þann 28. október flugum við í 5 tíma til Honolulu, þar tók Dóra á móti okkur með Lei (blómakrans). Hawaii er alveg frábær staður og gaman að heimsækja. Við gerðum margt og mikið í þessa 12 daga sem við vorum þar. Leigðum okkur bíl og keyrðum um alla eyjuna (Oahu). Gengum upp á Diamond Head sem er gígur með frábært útsýni yfir borgina, fórum á ströndina, köfuðum í Hanauma Bay, skoðuðum Pearl Harbor, borðuðum rækjur og shave ice, fórum í laugina, smá meira sólbað, kíktum í mallið og Wal Mart, smá meiri sól, drukkum bjór og kokteila og smá meira sólbað. Skruppum einn dag til Maui og fórum þar í rútuferð um alla eyjuna. Fórum upp á 3000 m. hátt eldfjall og inn í djúpan dal með háum fjöllum og í bæ sem heitir Lahaina. Flugum svo til Oahu um kvöldið aftur, frábær dagur. Það er óhætt að segja að Hawaii sé frábær staður og skemmtum við okkur konunglega á meðan við vorum þar. Gistum hjá Dóru upp á 42. hæð, en þaðan var alveg magnað útsýni yfir borgina og fjöllin í kring. Eftir þessa frábæru daga var ferðinni haldið til Minneapolis með millilendingu í San Fransisco. Við yfirgáfum Hawaii um kvöldið 9. nóv og vorum komin á hótelið í Minneapolis kl. 15 þann 10. nóv. Þar hittum við Himma, Herdísi, Arngrím og mömmu Himma. Vorum á hóteli sem er við hliðina á Mall of America (5 mín labb). Versluðum aðeins þar. Kíktum í sædýrasafnið þar sem Valgerður vann það þrekvirki að snerta hákarl eftir mikla innri baráttu við sjálfa sig. Svo að kvöldi 13. Nóv var þessi ferð okkar á enda. Flugum heim og vorum komin á Þrastarhöfðann kl. 10 á miðvikudagsmorgun. Samtals fórum við um 10 þúsund kílómetra vegalengd í beinni línu og eyddum um 30 klst í flugvél á flugi. Þess má geta að fara frá Keflavík til Tokyo er um 1000 km styttra en að fara frá Keflavík til Honolulu, geri aðrir betur.

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 20:09:29 / valgerður

Alltaf að baka heheh (Valgerður kann ekki að reikna)

Jæja, nú er svo komið að Valgerður þarf að fara læra stærðfræði aftur. Greinilega orðið aðeins of langt síðan síðast:) Fórum upp á Drauma að borða og ég var að segja mömmu frá baksturs vandræðunum mínum og á meðan ég er að tala við hana um þetta þá allt í einu fatta ég að 100 ml eru ekki = 10 dl ! Það eru víst 1000 ml í einum lítra ekki 100 hehehe. Valgerður klár :) þar af leiðandi setti ég alltof mikið af vökva í bæði skiptin hehehehe:) Alltaf að baka bara :Þ Jæja, við skulum bara ekkert ræða þetta meir. Þangað til næst bless Valgerður yfirbakari :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 18:59:00 / valgerður

Betty Crocker misreiknar sig

Var að reyna baka Brownie frá Betty Crocker í dag því Himmi, Herdís og Arngrímur Búri komu í heimsókn. Átti tvo pakka því ég ætlaði upphaflega að baka þetta fyrir himnasælu í vinnunni en nennti því svo ekki þegar á hólminn var komið. Hélt reyndar að þetta væri öðruvísi Betty, svona með karmellu líka en svo var ekki. Engin karmella í pakkanum, bara duftið. Allavega þá ákvað ég að baka þetta. Á pakkanum stendur 75 ml af vatni, 30 ml af olíu og 1 egg (sem ég þýddi sem 7,5 dl af vatni og 3 dl af olíu því ég á ekki milli-lítra mál). Allt í lagi, mín setur þetta allt í hrærivélaskálina og byrjar að hræra. Hef aldrei séð annað eins. Þetta var bara eins og vatn! En þetta átti að vera smá blautt því þetta er jú Brownie. Ok, svo ég set þetta í ofninn og fer svo í Bónus til að kaupa rjóma og ís með. Þegar ég kem tilbaka er kakan (vatnskakan) tilbúin. Oj barasta! Aðra eins drulluköku hef ég aldrei séð. En svo stendur líka á pakkanum 30 ml af olíu (2msk). 2 matskeiðar eru ekki 30 milli-lítrar! Mín ekki alveg að skilja. Þannig að ég prófaði bara næsta pakka. Setti 2 msk af olíu og 4 dl af vatni og þá heppnaðist hún betur. Smakkaðist ágætlega en þyrfti örugglega ennþá minna af vatni, kannski bara 3 dl og kannski aðeins minna form en ég var með. Ég held að hún Betty hafi eitthvað misreiknað sig þarna. Var að hugsa um að nota báða kassana saman og þá hefði farið 150 ml af vatni. Veit ekki hver útkoman hefð verið þá!
Segið mér eitt... 100 ml = 10 dl og 75 ml = 7,5 dl; er það vitlaust hjá mér (p.s. ég spurði meira að segja mömmu til að vera viss)?
Jæja, vildi bara skrifa eitthvað aðeins. Vorum að spá í að fara á Drauma að borða og leigja Pearl Harbor (aðeins að komast í gírinn fyrir Hawaii ferðina:) )

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 20:55:55 / valgerður

Skírn

Fórum í skírn í dag til Kötu og Mára. Þau voru að skíra gríslingana sína. Voru reyndar búin að nefna þau en í dag voru þau skírð. Þau heita Elísabet Heiða og Baldvin Ásgeir (fyrir þá sem ekki vissu). Þetta var rosalega skemmtilegt og systur hennar Kötu spiluðu og sungu í kirkjunni og svo sungu þær líka eitt lag í veislunni þannig að þetta var allt mjög kósí. Veislan var haldin í sama sal og þau voru með brúðkaupsveisluna upp á Kjalarnesi, Fólkvangur held ég að hann heiti. Þetta var allt mjög fínt hjá þeim og þökkum við kærlega fyrir okkur.
Annars held ég að það sé ekkert annað að frétta af okkur nema það að ég sit ein heima núna og er að bíða eftir Halldóri. Hann er búinn að vera á hljómsveitaræfingu síðan kl. 17:00 í dag. Ég labbaði reyndar upp á kaffihús áðan og fékk mér að borða og horfði á Örlagadaginn með Sirrý, bara af því að Kata kom fram í honum (var ekki þáttur um hana samt). Fékk svo far með mömmu heim og er búin að vera laga myndirnar úr skírninni til svo ég gæti sett þær inn hér á bloggið.
Læt þetta gott heita í bili, þangað til næst bless.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 21:45:52 / valgerður

Helgin

Helgin var tiltölulega róleg hjá okkur. Halldór var með Sjóvá partý á föstudaginn, bara einstaklingsþjónustan þannig að það voru ekki margir. Bara nett. Samt mjög skemmtilegt. Fórum að sofa um hálf fjögur minnir mig. Á laugardeginum fórum við að tala við ljósmyndarann varðandi uppstækkun, jólakort ofl. Við verðum að ákveða okkur hvaða myndir við viljum fá, helst í þessari viku því þau eru að fara í frí og þegar þau koma tilbaka þá verðum við farin í frí. Þannig að ef við viljum fá myndirnar áður en við förum út þá verðum við að drífa í þessu.
Eftir það fór Halldór inn í Keflavík á einhvern fótboltaleik. Ég nennti því ekki þannig að ég fór bara heim eða réttara sagt upp á kaffihús og ég og mamma ákváðum að drífa okkur í bæinn. Fórum í Kringluna til að kaupa afmælisgjöf handa Ragnheiði frænku og skírnargjöf fyrir Elísabetu og Baldvin þeirra Kötu og Mára en þau eru einmitt að fara skíra á sunnudaginn. Ég á svo eftir að útbúa kort fyrir þau.
Á laugardagskvöldið vorum við svo að passa krakkana hennar Jóhönnu því þau voru að fara í tvenn afmæli. Þau gistu svo í rútunni í Vogunum. Ég gisti þvi heima hjá þeim en Halldór fór heim. Svo fannst mér svo fyndið að á sunnudagsmorgninum spyr Aðalheiður hvort Halldór sé ekki að fara vakna (hehe, hún af öllum!) Hann mátti meira að segja kyssa hana góða nótt á laugardagskvöldið. Ætli frökenin sé öll að koma til? Farin að taka Halldór í sátt??? Það er nú kominn tími til hehehe.
Jóhanna og Steini komu svo heim upp úr hádegi á sunnudeginum og þá fóru ég og Halldór heim.
Halldór þurfti svo að hitta vinnufélagana sína í Sjóvá vegna verkefnavinnu um eitt leytið og fór ég með honum því ég þurfti að koma við í Kringlunni til þess að láta gera við gleraugun mín. Það losnaði skrúfa. Svo gat gellan sem tók við þeim í Auganu ekki gert við þetta og spurði hvort ég gæti ekki náð í þau á morgun (sem sagt á mánudagsmorguninn) bara svona um 10 leytið. Halló!!! Ég sagði bara nei... ég get það ekki ég verð að fá gleraugun mín. Já þetta er nefnilega svolítið erfitt af því að ég er ekki optiker sagði stelpan en í því kom einhver kelling sem gat greinilega lagað þetta en það myndi taka hálftíma, sem ég hafði ekki því Jóhanna og Steini ætluðu að pikka mig upp hjá Sjóvá og við vorum að fara í afmælið til Ragnheiðar. Þannig að ég sagði þeim að maðurinn minn (takið eftir, MAÐURINN MINN, hehehe) myndi bara koma á eftir og sækja þau. Þannig að ég var gleraugnalaus frá hálf þrjú á sunnudeginum til kl. 10 um kvöldið því Halldór þurfti líka að fara á hljómsveitaræfingu eftir verkefnavinnuna og var ekki kominn heim fyrr en þá. Mér var orðið þokkalega illt í hausnum og flökurt og hringdi meira að segja í mömmu til að spyrja hvort þetta væri eðlilegt að ég væri svona af því að ég væri ekki með gleraugun og hún sagði að svo væri.
Hún sagði að ég ætti náttúrulega ekki að vera horfa á sjónvarpið eða lesa ekki með gleraugun, en hvað annað átti ég að gera??? Hlusta á tónlist sagði mamma. Yeah right og ekkert annað? Ég hefði dáið úr leiðindum þá. Mér finnst allt í lagi að hlusta á tónlist en kannski ekki BARA það. En þetta lagaðist nú allt þegar Halldór kom heim og ég fékk gleraugun mín tilbaka. Var meira að segja búið að þrífa þau og allt. Voru orðin dáldið skítug.
En svona var nú helgin hjá okkur.
Þangað til næst elskurnar
Love Valgerður og Halldór

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 14:26:58 / valgerður

Skruppum til Kölnar seinustu helgi

Jæja smá updeit á því hvað við erum búin að vera gera undanfarna daga og ástæðan fyrir því að ekki var hægt að ná í okkur. Við skruppum til Kölnar seinnipartinn á fimmtudaginn og komum heim á mánudagsmorgun. Við fengum far með Bláfugli (cargo) en Raggi hennar Sigrúnar vinnur hjá þeim og reddaði okkur fari. Ekki þægilegasta flug sem við höfum farið í en það var frítt þannig að við létum okkur hafa það. Fengum líka að sitja framm í hjá flugstjóranum (það þurftu tveir að sitja frammí og tveir aftur í). Vorum 4 á leiðinni út, þ.e. ég og Halldór og svo 2 aðrir gæjar sem við þekktum ekki. Á leiðinni út var stoppað í Cork á Englandi en það var bara stutt. Vorum svo komin til Kölnar um ellefu um kvöldið (á staðartíma). Þar hittum við Sigrúnu og Ragga og fórum aðeins út á pöbbinn. Bara rólegt. Föstudeginum var svo eytt á aðal verslunargötunni og þá var eitthvað verslað. Getum nú sagt með góðri samvisku að við versluðum nú ekki mikið á okkur sjálf, aðallega föt á frændsystkynin fyrir mömmu. Fórum svo út að borða á ítalskan stað, leigðum okkur 2 myndir og láum í leti, enda engin djammferð. Laugardagurinn var rólegur, sofið út og farið niður í bæ um miðjan dag. Fórum um kvöldið á geðveikt steikhús, El Gaucho, þar sem við fengum okkur steik. Besta steik sem við höfum fengið. Eftir það var farið á bar og setið þar til rúmlega 3 um nóttina og nokkrir bjórar og kokteilar láu í valnum. Endað á McDonalds í einum sveittum borgara. Sunnudagurinn var rólegur, sofið út og kíkt niður í bæ á dómkirkjuna sem er svakalega flott og mikil bygging. Fengum okkur að borða og svo var haldið upp í íbúð til að pakka fyrir heimferðina. Við vorum sótt kl 22:00 og fórum í loftið 23:45. Stoppuðum í Englandi í 2 og hálfan tíma og kíktum í búð til að kaupa okkur að lesa og smá til að narta í. Lentum í Keflavík kl 04:15 og við vorum komin upp í rúm á Þrastarhöfðanum kl 05:55. Vaknað kl 9 til að fara í vinnu. Úff langur dagur framundan og lítið búið að sofa en slapp þó fyrir horn. Endilega kíkið á myndirnar:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 18:16:45 / valgerður

Sæl öll sömul

Hér neðst er linkur á síðu sem heitir: Af litlum neista og er þar maður sem heitir Auðunn Sólberg Valsson og er að skipta út hlutum fyrir aðra verðmætari. Hann byrjaði á bréfaklemmu og er núna kominn í 10 manna pizzu og pastaveislu á Horninu. Hann byrjaði með síðuna 15. október 2006 og ætlaði að vera með hana í 1 ár. Andvirði lokahlutarins sem hann fær ætlar hann svo að gefa CP félaginu sem er félag aðstandenda barna með heilalömun. Hugtakið CP er notað sem regnhlífarhugtak yfir þær gerðir fötlunar sem koma fram á fyrstu æviárunum og einkennast af afbrigðilegum og seinkuðum hreyfiþroska. CP er afleiðing skaða eða áfalls í stjórnstöðvum hreyfinga í heila, sem verða áður en hann nær fullum þroska. Skemmdirnar torvelda stjórnun hreyfinga og beitingu líkamans. Þær eru óafturkræfar og aukast ekki með tímanum (www.cp.is). Nú styttist því bráðum í annan endann á þessari síðu og því ef þið vitið um einhvern sem getur boðið betur en þessa pizza og pastaveislu þá er um að gera að kíkja á síðuna hans og hafa samband. Þið styrkið gott málefni :) http://aflitlumneista.blogspot.com/ Valgerður

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 23:05:04 / valgerður

Jaka hittingur og Ljósanótt

Jakarnir ákváðu að hittast í gær yfir vöfflum og rjóma ásamt ýmsu öðru góðgæti. Aldrei þessu vant var bara 100% mæting sem er mjög gott. Jakar, makar og ísmolar mættu á galvaskir á Þrastarhöfðann um þrjú leytið og var þá byrjað að vöfflast. Þetta var rosalega gaman. Lögðum svo af stað rúmlega sex inn í Keflavík á Ljósanótt. Fengum að borða hjá Geira (bróðir Badda) og Ingu. Fengum gúllassúpu sem kom sér vel svo við yrðum ekki svöng niðri í bæ um kvöldið. Upp úr níu fórum við svo niður í bæ. Þar var rosalega mikið af fólki og mikið um að vera. Hlustuðum á Jógvan, Rúnna Júll og Jóhann Helga og Cortes. Eftir það var flugeldasýningin. Hún var mjög flott, allavega það sem maður sá af henni. Veðrið var mjög stillt (fyrir utan rigningu sem byrjaði akkúrat þegar sýningin byrjaði) og því hreyfðist reykurinn ekkert og flugeldarnir sprungu fyrir aftan reykinn. Þetta var mjög sérstakt. Svo þegar sýningin var búin og allir á leiðinni heim kom lokahnykkurinn (þegar mesti reykurinn var farinn) og fleiri flugeldum var skotið á loft. Þetta var allt mjög gaman. Stoppuðum aðeins hjá afa á Aðalgötunni til þess að bíða eftir því að aðeins myndi greiða úr umferðinni. Biðum í ca. 10-15 mín en þá drifum við okkur því Rebekka þurfti að vakna snemma og klukkan var orðin hálftólf. Lentum í smá stíflu á leiðinni á Suðurgarðinn en ekkert rosalegt. Fórum svo krókaleið í gegnum bæinn til að sleppa við mest alla umferðina á Hafnagötunni. Ákváðum að kíkja við hjá Sillu og Tryggva (kannski kominn tími til, þau eru búin að búa í Keflavík í rúmt ár og við ekki farið í heimsókn einu sinni!). Allavega þau eru flutt núna inn í Innri-Njarðvík þar sem þau eru að byggja sér hús. Húsið er ekki tilbúið en þau samt flutt inn og búin að gera það besta úr aðstöðunni. Þetta var mjög gaman því við höfum ekki hitt þau lengi. En fyrir þá sem ekki vita þá bjó Halldór með Sillu, Tryggva og börnunum þeirra tveimur úti í USA á meðan þeir voru í fluginu. Við sáum umferðina á Reykjanesbrautinni út um stofugluggann hjá þeim og þar var bara bíll við bíl, við bíl, við bíl, við bíl... Það var ekki fyrr en rúmlega tveimur tímum eftir að við komum til þeirra eða um 2:15 að eitthvað var farið að hægjast um. Við vorum hjá þeim til 4 og var mikið talað og hlegið og bara mjög skemmtilegt. Vorum komin heim og upp í rúm rétt fyrir 5. Held að það hafi ekki gerst síðan á brúðkaupsnóttina okkar (þ.e. að við höfum farið svona seint að sofa) og þar á undan ekki síðan á gamlárskvöld. Jæja, ég setti inn tvö albúm, annað frá Jaka hittingnum og hitt frá Ljósanótt. Ælta ekki að hafa þetta lengra í bili. Þangað til næst elskurnar mínar. Adiós

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 18:45:17 / valgerður

ok síðustu myndirnar í bili

Jæja skellti inn seinasta albúminu í bili og er það frá því við héldum upp á afmælin okkar en þar vakti Brynjar Björn sonur Kidda og Jóhönnu mikla lukku hehe :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 18:20:36 / valgerður

Aðrar nýjar gamlar myndir

Fórum líka í Sogið í sumar, eða réttara sagt í heimsókn í Sogið. Baddi og afi voru að veiða og við kíktum aðeins til þeirra. Stuttu eftir að við komum á svæðið fékk Baddi einn fisk sem Halldór hjálpaði honum við að landa. Stuttu seinna fékk hann svo annan fisk. Samtals fékk Baddi þrjá fiska þessa daga sem hann og afi voru í veiði. Ég og Halldór komum bara í heimsókn seinasta daginn. Setti inn nokkrar myndir frá Soginu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 18:02:07 / valgerður

Nýjar gamlar myndir

Ákvað að skella inn nokkrum myndum frá því í einu útilegunni okkar í sumar en þá var farið í Þjórsárdalinn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 17:24:38 / valgerður

Sunnudagskaffi

Fórum í sunnudagskaffi til Sigrúnar í gær. Hún var rosa myndarleg, bakaði vöfflur og eina köku og var svo með ýmis konar meðlæti með. Ég vildi óska að ég væri svona myndarleg. Ekki það að mér finnist eitthvað leiðinlegt að baka, þvert á móti. Mér finnst mjög skemmtilegt að baka en ég nenni því aldrei af því að við erum bara tvö og mér dettur aldrei í hug að hringja í einhvern og bjóða fólki í kaffi. Ég þyrfti kannski að fara taka upp á því núna. Tengdó voru þarna að sjálfsögðu og tengdaforeldrar Sigrúnar sem og amma og afi og svo systkini Ragnars. Þannig að þetta var svona slatti af fólki. Lögðum af stað um þrjú leytið og vorum komin aftur heim um tíu leytið í gærkvöldi. Sáum tunglið á leiðinni heim, sem er kannski ekki frásögu færandi, en það var rosalega stórt og svona appelsínugult. Ótrúlega flott að sjá og við náttúrulega gleymdum að taka með okkur myndavélina. Ætla að reyna vera dugleg að taka myndavélina okkar með þegar við förum inn í Keflavík því það kemur stundum fyrir að við sjáum eitthvað flott eða þá að það er eitthvað um að vera (eins og þegar TF-LÍF fór í sjóinn um daginn) og þá væri nú gaman að hafa myndavélina við höndina. Halldór var að byrja í Tryggingarskóla í dag. Hann byrjar í skólanum kl. 9 og er til kl. 12 og fer svo beint að vinna eftir það. Hann er tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum. Veit ekki hvernig fyrsti dagurinn hans var því hann er ekki kominn heim, þurfti að fara til tannlæknis (öfunda hann ekki og það sem meira er, hann hringdi sjálfur til að panta tíma hjá honum. Það myndi mér aldrei detta í hug,hehehe). Held að það sé nú ekki mikið meira að frétta frá okkur skötuhjúunum í dag, Halldór segir ykkur kannski frá skólanum þegar hann kemur heim. Þangað til eitthvað skemmtilegt gerist næst, bæjó:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 16:24:37 / valgerður

Afmælisflipp fyrir þjónustugjöldin og FIT kostnaðinn

Fórum á tónleika í gær, smá tilbreyting frá hversdagsleikanum. Páll Óskar sá um upphitun eins og honum einum er lagið og stóð hann sig mjög vel; einkunn: 5 af 5. Fyrstir á svið voru SSSól gamlir rokkarar sem litlu hafa gleymt. Helgi Björns heldur alltaf að hann sé ennþá 17 ára (Eru ekki allir sexý?); einkunn: 4 af 5. Næst á sviðið var strákadraumurinn hans Einars Bárða (Palla til mikillar ánægju hehehe), súkkulaðistrákar í Luxor sem leggja meira upp úr útlitinu en söngnum; einkunn; 4 af 5. Mugison var næstur á svið, mjög flottur rokkari, góð lög, gott band; einkunn: 5 af 5. Eftir Mugison kom Todmobile (minnir okkur), alltaf þéttir, góð tónlist sem hægt var að dilla sér vel. Einkunn: 4 af 5. Næstar á sviðið voru hinar sykursætu Nylon stelpur sem komu fram í fyrsta skipti sem tríó. Svo virðist sem þær hafi gleymt því að á Íslandi er ekkert alltof hlýtt því ekki var fatnaður þeirra keyptur í 66°N. Mjög stutt pils og kjólar var klæðnaður kvöldsins og kemur okkur ekki á óvart að þær sitji núna heima með blöðrubólgu, hehehe. Einkunn: 2 af 5. Til þess að drepa stemninguna alveg var ákveðið að undrabarnið Garðar Thor Cortes kæmi næstur á svið með sína klassík. Gerði ekki mikið fyrir okkur en örugglega mikið fyrir húsmæður úr Vesturbænum og Breiðholtinu sem finnst hann syngja ótrúlega vel og ekki skemmir útlitið fyrir. P.s. hann leit alveg eins út og á plötuumslaginu sínu. Einkunn: 3 af 5. Kóngurinn, Bubbi Morthens, var næstur á sviðið til að peppa fólkið upp úr þunglyndinu eftir Cortes en hann stendur alltaf fyrir sínu. Tók nokkur af sínum bestu lögum svo sem Afgan, Rómeo og Júlía, Stál og hnífur og Sumarið er tíminn. Óhætt er að segja að allir hafi sungið með og var ótrúlega gaman að heyra óminn frá stúkunni bergmála um svæðið. Einkunn 5 af. Eftir að kóngurinn hafði klárað var komið að lokaatriðinu en það voru Stuðmenn. Óhætt er að segja að Stuðmenn séu búnir að missa það. Þvílík hörmung svo vægt sé til orða tekið. Þeir voru með rafmagnstrommur og hljóðgervla sem voru í tísku 1980. Enginn gítar enginn bassi og engin Birgitta Haukdal. Þetta var ömurlegt og vorum við mjög hneyksluð á þessu. Svo kom Bo Hall og söng eitt lag með þeim og það lagaðist ekkert við það. Stuðmönnum tókst hið ómögulega, meira að segja Íslenska landsliðinu í fótbolta hefur ekki tekist það en það er að tæma stóru stúkuna á Laugardalsvelli á mettíma. Eftir fyrsta lag Stuðmanna byrjaði fólk að yfirgefa svæðið og var það kannski gott því bílaumferðin dreifðist yfir lengri tíma. Við fórum áður en Stuðmenn kláruðu. Einkunn 1 af 5. Skemmtilegir tónleikar þegar á heildina er litið, einkunn 4 af 5, og þá eru það næstu tónleikar í kvöld á Miklatúni. Núna er ekkert því til fyrirstöðu að fylla Laugardalsvöllinn þegar U2 eða Rolling Stones koma til Íslands. Þeir sem búa í útlöndum eða sáu þetta ekki í sjónvarpinu þá má horfa á þetta á ruv.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Dagsetning
10. febrúar 2012
Fréttir
Brúðarkjólar